04.07.2008 13:40:00 / ledz
Kominn til Íslands
Já sæl öll, þá er maður kominn til Íslands. Ég stefni á það að vera hérna í svona 2 mán kannski, ætla að reyna að komast á sjóinn aðeins og næla í smá penge. Svo er planið að fara bara aftur út og finna sér íbúð og vinnu. Síðasta vikan úti var bara nokkuð góð. Fjölskyldan kom þá í heimsókn og kom með í útskriftina. Svo fór fólkið úr bekknum niðrí bæ á einhverja pubba og þar var fengið sér aðeins og bara mjög gaman. Svo á laugardeginum fórum við í Tívolí. Þar hittum við Högna og fjölskyldu hans og skemmtum okkur bara þónokkuð vel. Á laugardagskvöldið fórum við svo út að borða, fjölskyldan og Kitija og fjölskylda hans Högna. Fórum á XL og fórum í "all you can eat ribs", það klikkar aldrei. Svo tók bara við að koma sér til köben, klára allt sem ég átti eftir að gera fyrst þarna í Aarhus. Það var síðan eytt 3 nóttum í köben, farið í Tívolí og á strikið og allt þetta dót. Svo núna er maður í Hafnarfirði og er á leiðinni á smá "ættarmót" á morgun og kem svo norður einhverntímann á sunnudaginn. Skila kveðju til þeirra í Aarhus sem ég náði ekki að kveðja og við sjáumst bara aftur í haust og hafið það gott í sumar.
kv
Leo