bendill
Felagar
Könnun
Hvernig tónlist hlustarðu mest á?







11.09.2008 07:58:59 / ledz

Nýtt look



» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 07:38:19 / ledz

DK

Já þá er maður kominn til Danmerkur aftur. Að vísu svolítið síðan en hef ekkert nennt að blogga, stórefa líka að það séu margir að kíkja á þetta blogg. En já mjög fínt að vera kominn út aftur. Komst aðeins á sjóinn heima og flaug svo út. Núna er maður kominn með íbúð, búinn að vera í rúma viku að leita á fullu af íbúð og loksins fann maður eina. Þegar ég segi rúma viku þá er það samt + 2 mánuðir og eitthvað sem maður var að leita á meðan maður var á Íslandi. En við eigum að flytja inn á mánudaginn ef við náum að ganga frá öllu, þ.e.a.s. borga þessa tryggingu og allt það. Íbúðin sjálf lítur mjög vel út. Hún er aðeins frá miðbænum, við erum 30min með strætó þangað svo þetta er í svipaðri fjarlægð og þegar ég bjó á kollegíinu. Gaurinn er svo búinn að vera vinna í íbúðinni þannig að allt verður í toppstandi þegar við flytjum inn. Ég mun svo henda einhverjum myndum af henni þegar það er eitthvað komið inn í hana og svona. Þurfum að redda öllum húsgögnum, eina sem við eigum er held ég sjónvarp og tölvur. Fengum að vísu gefins fataskáp sem var þarna í íbúðinni.

En já svo er maður bara búinn að vera að leita að vinnu og svona, búinn að skrá mig á nokkrar svona atvinnumiðlanir.

Í gær kíktum ég og Gunni á Portúgal-Danmörk og þvílík endurkoma hjá Dönum. Voru ekki að gera neitt að mér fannst mest allann leikinn en skoruðu svo 2 mörk á síðustu 4mín.

Svo þarf náttúrulega ekkert að minnast á það að stórleikurinn er á laugardaginn kl 13:45 á dönskum tíma. Get ekki beðið. Finnst eins og enski boltinn hafi ekki verið í gangi í heilann mánuð. Ekki ennþá búinn að horfa á leik frá því að ég kom út, fyrir utan þennan Supercup á móti Zenit en það var bara frekar súr leikur, töpuðum líka þeim leik.....

En já framundan er svo bara að flytja og redda ýmsu svo vonandi að fá vinnu sem fyrst. Ef þið vitið um eitthvað megið þið láta mig vita, samt helst þá hérna í DK nenni ekki að fljúga heim og aftur út.

Bið að heilsa
Leó


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 10:36:50 / ledz

síld

Jæja þá er maður að fara á sjóinn núna á eftir. Fékk pláss eftir svolítið lengri bið en ég hélt að myndi verða. Fer allaveganna í viku og svo vonandi fær maður eitthvað meira. En það er allaveganna internet samband á þessu skipi, sem hlýtur að vera alveg magnað. Bið bara að heilsa í bili og kem þá kannski með eitthvað smá blogg frá skipinu.

kv
Leó


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 13:40:00 / ledz

Kominn til Íslands

Já sæl öll, þá er maður kominn til Íslands. Ég stefni á það að vera hérna í svona 2 mán kannski, ætla að reyna að komast á sjóinn aðeins og næla í smá penge. Svo er planið að fara bara aftur út og finna sér íbúð og vinnu. Síðasta vikan úti var bara nokkuð góð. Fjölskyldan kom þá í heimsókn og kom með í útskriftina. Svo fór fólkið úr bekknum niðrí bæ á einhverja pubba og þar var fengið sér aðeins og bara mjög gaman. Svo á laugardeginum fórum við í Tívolí. Þar hittum við Högna og fjölskyldu hans og skemmtum okkur bara þónokkuð vel. Á laugardagskvöldið fórum við svo út að borða, fjölskyldan og Kitija og fjölskylda hans Högna. Fórum á XL og fórum í "all you can eat ribs", það klikkar aldrei. Svo tók bara við að koma sér til köben, klára allt sem ég átti eftir að gera fyrst þarna í Aarhus. Það var síðan eytt 3 nóttum í köben, farið í Tívolí og á strikið og allt þetta dót. Svo núna er maður í Hafnarfirði og er á leiðinni á smá "ættarmót" á morgun og kem svo norður einhverntímann á sunnudaginn. Skila kveðju til þeirra í Aarhus sem ég náði ekki að kveðja og við sjáumst bara aftur í haust og hafið það gott í sumar.

kv
Leo

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 17:44:45 / ledz

Lokaverkefni

Jæja þá er það klárt video-ið. Getið tjekkað á því og endilega segið okkur hvað ykkur finnst. Ef þið viljið svo þá væri mikil hjálp í því ef þið mynduð benda öðrum á að fara á YouTube linkinn og horfa á myndbandið. Partur af verkefninu okkar er að auglýsa video-ið og reyna að fá eins mörg "view" og við getum.

Linkur hér video


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 17:53:53 / ledz

Eitt video

Sæl öll, hérna er video sem að Kitija gerði fyrir lokaverkefnið sitt. Gerði þetta video við eitt af lögum frá mér. Endilega kíkið á það, hún er að reyna að fá eins mikil view og hún getur. Svo fer að styttast í að ég og Högni setjum okkar lokaverkefni á YouTube....

Video


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 15:59:21 / ledz

hvað er að frétta?

Hérna er allt bara fínt, sólin skín nánast hvern dag og það er alveg frábært. Fórum til Horsens um daginn að filma smá fyrir einn strák sem ég þekki þar. Um kvöldið enduðum við svo í einhverju Íslendinga partíi þarna og auðvitað tókst mér að gleyma camerunni þar. Fórum í dag ég og Högni að sækja hana þannig að það er allt í góðu. Í kvöld á að byrja að filma fyrir lokaverkefnið. Fannar er aðalleikarinn í þessu og á eflaust eftir að standa sig með prýði, ég verð að æfa leikstjórahæfileikana bara. En já svosem ekkert mikið annað í fréttum. Bara verið að fara á fullt í þessu verkefni núna og svona. Er svo að fara spila á næturklúbb niðrí bæ einhverntímann í næsta mánuði eða það held ég allaveganna.

Kláraði nýtt lag í dag... megið endilega hlusta og segja mér hvað ykkur finnst.

Under red sky

Bið að heilsa öllum og hafið það gott

kv
Leó


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 17:30:47 / ledz

Nýtt lag

Ég var að klára nýtt lag í dag eða svona nánast tilbúið. Ég og Högni erum búnir að ákveða að vinna saman í lokaverkefninu. Búa til video og þetta verður lagið sem notast verður við. Að vísu er þetta full útgáfa af laginu, alveg 10 mínútur. Lagið verður stytt og ákveðnir partar teknir út fyrir myndbandið.

En allaveganna þá bið ég bara að heilsa ykkur öllum og hafið það gott

hérna er lagið Nice marketing


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 10:04:18 / ledz

111 Ísland

Já núna erum við Jón einir eftir í þessu húsi nr. 111. Jón bjó til plakat í gær, sem er íslenski fáninn og svo nr. 111. Hugmyndin er að hengja þetta utan á húsið svo fólk viti hvers konar mannskapur býr hér.

En já í dag er bara þetta fínasta veður, svipað og var í gær. Í gær fórum við strákarnir aðeins út í garð hérna að spila boccia. Svo horfðum við á United leikinn og úrslitin í þeim leik voru náttúrulega bara jákvæð.

Maður er svo alltaf að elda meira og meira hérna, enda er eldhúsið að skána núna eftir að parið í herbergi 6 er flutt út. Á mánudaginn eldaði ég t.d. 2 stórar steikur, kartöflur, grænmeti og sósu. Allt of mikið fyrir 1 að borða en ég reyndi að taka "Guðmund Karl" á þetta, náði nánast að klára allt.

Í dag er planið að fara niðrí bæ og reyna að komast í klippingu einhversstaðar. Er orðinn frekar leiður á þessum lubba.

Svo er verkefnið í fullum gangi, á fund með kennaranum mínum í næstu viku.

Á morgun verður svo farið á tónleika, Trentemöller að spila. Held að það sé í þriðja skiptið sem ég fer á hann og hingað til hefur hann staðið sig mjög vel.

Bið að heilsa ykkur öllum og hafið það gott
Leó


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 00:26:23 / ledz

jæja

Já nú er maður vaknadi hérna um miðja nótt. Er að reyna að smella saman í eina ritgerð sem á að skila á miðvikudaginn. Planið er að halda sér vakandi bara í alla nótt og reyna að gera eins mikið og ég get. Langar að vera nokkurn veginn búinn með þetta fyrir helgina, allaveganna fyrir sunnudaginn vegna þess að þá eru jú páskar og einnig stórleikur Manchester United-Liverpool. Hef það á tilfinningunni að pabbi horfi á þann leik blýsperrtur á sjónum, þ.e.a.s. ef hann verður ekki kominn í land.

Það er alveg ótrúlegt hvað allt getur komið í veg fyrir að maður geri það sem maður ætti að vera gera. Núna ætti ég t.d. að vera skrifa í ritgerðinni en er að blogga í staðinn. Man líka eftir því í framhaldsskóla að þegar maður átti að vera lesa undir próf þá gat allt stolið athygli manns. Allt í einu urðu hlutir eins og að klippa neglurnar, horfa á ömurlega sjónvarpsþætti, stara á veggi og svoleiðis dót mjög áhugavert. Var svona að spá í því hvort þetta sé kannski svona með allt. Núna finnst mér t.d. skemmtilegt að horfa á fótbolta, ef við tökum það sem dæmi. Segjum að einhver segði að ég þyrfti að horfa á þennan ákveðna fótbolta leik á milli Manchester United og Liverpool, væri það minna spennandi vegna þess að það er skilda ?

Þetta er kannski extreme dæmi ég veit, en bara eitthvað annað líka. Virðist vera eins og þessa skilda og skipun geri hlutina mun leiðinlegri.

Ég var t.d. mjög spenntur fyrir þessu verkefni áður en það byrjaði en núna langar mig ekkert til að gera það.

En allaveganna nóg um það. Páskarnir eru að koma, allir í stuði fyrir það og væntanlega í fríi. Ég tel mig ekki vera í miklu fríi út af þessu verkefni en maður gerir vonandi eitthvað skemmtilegt um helgina.

Ég fékk smá páskaglaðning sendann frá mömmu og býst sterklega við því að gæða mér honum á sunnudaginn (aðeins búinn að stelast í hann að vísu).

Í dag fengum við Jón (annar íslendingur sem býr hér í húsinu) þær skemmtilegu fréttir að parið í herbergi númer 6 eru að flytja út í þessum mánuði.

Þau hafa verið svolítið treg við að þrífa í eldhúsinu og ástandið á því stundum er vægast sagt skelfilegt. Þegar þau eru flutt út þá eru það bara ég og Jón sem búum hérna í þessu 12 herbergja húsi. Ég tek ekki Olav með sem býr í nr. 12, hann er eldgamall (ca. 50 ára) og ég hef ekki séð hann síðustu mánuði. Það er líka formlega búið að henda honum út þrisvar sinnum held ég.

Held það verði nokkuð nice að hafa þetta þannig að það verði bara 2 íslendingar hérna. Jón er líka þrælfínn gaur.

Ég býst við því að þetta verði bara páskabloggið, efast um að ég skrifi meira fyrr en í næstu viku.

Eigið góða hátíð öll og endilega borðið yfir ykkur !

kv
Leó


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 16:58:02 / ledz

nýtt lag

Kláraði þetta í dag og það verður spilað um helgina.

http://www.internetdj.com/artists.php?op=songinfo&mediaid=45498


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 12:18:19 / ledz

jamm

Helló

hvað er að frétta ?

Sit hérna núna að fá mér kaffi og skrifa blog. Sólin er að skína á mig hérna fyrir utan. Hmmm hvað er eiginlega að frétta hjá mér. Jú ég fór á bókasafnið hérna í Aarhus í gær, þeir sem þekkja mig vita það að ég fer ekkert oft á svoleiðis staði. En var þar að leita af bókum um video gerð og fann 2 góðar.

Á morgun á svo að kíkja í roadtrip til Köben, Fannar er að fara ferja bíl þangað og ætlum við hinir fýrarnir að veita honum félagsskap.

Svo er Tommi kallinn búinn að gera magnað plakat og það má finna hér
Allir þeir sem búa í Aarhus eða Danmörku ættu að mæta á þetta. Ekki verra fyrir fólk á Íslandi að gera sér ferð á þetta.

Mamma er líka svo að senda mér pakka með íslensku góðgæti alveg frábært að fá það, takk mamma.

Hvað var það svo fleira..... jú Manchester United er komið í 8 liða úrslit meistaradeildarinnar 8)

Þarf að taka til í herberginu mínu í dag sýnist mér. Mæli með 2 bíómyndum ef þið hafið ekki séð þæri:

1. No Country For Old Men - alveg æðisleg mynd
2. There Will Be Blood - svakalega vel leikin mynd,,, ekki eins góð og nr. 1 samt

Skellti mér á sunnudaginn síðasta í heimsókn til Ebeltoft þar sem var opið hús í kvikmyndaskólann. Mjög flottur skóli sem hefur upp á allt að bjóða, gott stúdíó, góðann tækjabúnað, 2 bíó og flott umhverfi.

Ætla að sækja um þennan skóla og annan skóla í Englandi, svo hugsanlega einhverja fleiri skóla ef ég finn eitthvað. Megið alveg henda inn link ef þið vitið um einhverja flotta skóla í kvikmyndagerð, já eða tónlist.

Við segjum þessu bloggi lokið núna

hafið það gott
Leó


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 13:53:33 / ledz

Nýtt lag

Var að henda inn einu fersku lagi hingað linkur

Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst

Ekki verra ef þið getið spilað í sterkum bass 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 12:25:36 / ledz

Helgi

Hallo

Er buinn ad vera ad skoda i gegnum blog sidur hja felogum nuna og tad virdast allir hættir ad skrifa tannig ad eg verd ad sja um tetta.

Tad er nu ekkert mikid sem eg get sagt fra. Er byrjadur ad elda adeins nuna. Eitthvad sem eg hef aldrei talid mig kunna en eg er nu bara agætis kokkur. Spurning hvort madur hafi tetta fra pabba. Eldadi 2 goda pasta retti i vikunni og svo er eggjahræran min ad verda fullkomin. Hef nu ekki profad ad elda mikid meira en tad en mer skilst ad allt se downhill eftir ad madur masterar eggjahræru.

Meistaradeildin var i vikunni og minir menn nadu svona alveg sæmilegum urslitum. Jafntefli a utivelli a moti Lyon.

Gisli, felagi Hogna fra Isafirdi kom i heimsokn i sidustu viku. Syndum honum godu hlidarnar a Aarhus. Svo heldu Tommi og Hogni sameiginlegt afmælisparti sidasta laugardag. Budu slatta af folki heim til Hogna. Tommi mætti med Nintendo Wii sem er alveg brilliant tæki.

Er svona buinn ad vera vinna i verkefninu minu hægt og rolega. Gengur eitthvad erfidlega ad skrifa en tad hefur bara alltaf verid tannig hja mer ad eg vinn best undir pressu. Tannig ad tetta byrjar væntanlega ad rulla af fullum krafti tegar 10 minutur eru i skilafrest.

Sit nuna i skolanum ad reyna ad skrifa eitthvad sma. Heyri ad teir eru bunir ad starta skolabarnum herna i næstu stofu. Madur heyrir bjorinn renna ur dælunni, tonlist i gangi, folk ad hlæja og madur spyr afhverju i oskopunum madur situr herna ad skrifa blogg um tetta..... gotta go hehe

Hafid tad gott
Leo


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 09:30:31 / ledz

Mánudagur

Góðann daginn

Enn einn mánudagurinn kominn. Sólin virðist ætla láta aðeins sjá sig í dag sem er bara gott mál. Er á leiðinni í skólann á eftir þar sem ég ætla að byrja að fara skrifa í verkefninu mínu. Skrifaði eina bls á fimmtudaginn síðasta og ætlaði að senda það á kennarann. Fékk svo mail frá honum í dag og þá hafði ég víst gleymt að setja skjalið í póstinn þannig að hann fékk það ekki. Það sem gerðist líka þegar ég var að skrifa þetta í skólanum var að einhver gaur tók tölvuna mína og loggaði mig út og sig inn. Ég spurði hann hvort hann hafi ekki örugglega save-að skjalið og hann var ekki viss. Held að vísu að það sé svona auto-save á þessu. En það er svosem lítið mál að skrifa þessa blaðsíðu aftur ef hún er horfin.

Helgin var svo mjög góð. Á föstudaginn skelltum við okkur á tónleika með hljómsveitinni Bloodgroup. Tónleikarnir voru mjög fínir og allir í stuði. Af öllum mönnum hitti ég svo Styrmir frænda. Hann er víst hljóðmaður hjá þeim. Skrítið að hitta hann allt í einu þarna. Á laugardaginn héldu svo Tommi og Högni sameiginlegt afmælispartí. Dagurinn byrjaði náttúrulega á frábærum fótboltatilþrifum hjá mínum mönnum. Við unnum þá Arsenal 4-0. Tommi mætti svo um kvöldið með Nintendo Wii og fórum við að spila tennis og keilu og eitthvað í þeirri tölvu. Virkilega skemmtilegt að spila þetta. Ég fór svo heim og pantaði mér pizzu um nóttina. Það hefur svo gerst að ég hef sofnað á meðan ég beið eftir henni. Greyið gaurinn hefur staðið fyrir utan og ég sá að það voru 6 missed calls á símanum mínum. Held að ég ætti ábyggilega ekki að panta frá sama staðnum aftur.

Núna er svo góð pressa að koma á mann vegna þess að það er semsagt mikið að gera í þessu verkefni. Svo styttist líka óðum í að við strákarnir förum að spila á barnum. Ég er kominn með einhver 3 lög held ég og þau verða ábyggilega eitthvað um 12 (eða vona ég). Þannig að það er allt að gerast. Ég man nú ekki eftir neinu meira í augnablikinu þannig að við látum þetta gott.

hafið það gott
Leó


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5